18. september 2008
View sibba's profile on slideshareVar með kynningu á notkun upplýsingatækninnar í námi og kennslu í Listaháskólanum í morgun. Var virkilega skemmtilegt þar sem hópurinn var virkilega áhugasamur. Ákvað að prófa slideshare í kvöld og setti bæði pdf og ppt skjöl þar inn.

21. nóvember 2007
Kennsluefni í Photoshop um hvernig eigi að skera hring úr mynd og mýkja útlínurnar (feida). Einnig er farið í hvað á að gera til að bakgrunnurinn verði hvítur eða gegnsær.

20. nóvember 2007
Ég skannaði inn eitthvað af kortum og setti upp á vef. Þ.e. svona smá sýnishorn.

14. nóvember 2007
Kennsluefni: Að setja inn sinn eigin bakgrunn í Powerpoint
Ég bjó til smá kennsluefni um hvernig maður keyrir út úr Illustrator bakgrunnsmynd á glærur sem .jpg mynd og nær svo í hana í Powerpoint og setur inn þannig að verði bakgrunnur á öllum glærunum í kynningunni.

17. september 2007
Fór yfir stílsnið/eyðublað sem ég bjó til fyrir forhönnunarskýrslu og setti aftur út á Netið. Bætti við nokkrum þáttum sem ég taldi bæta skýrsluna. Stílsniðið er hægt að sækja sem .doc

12. september 2007
Bjó til þrjár litlar æfingar í Flash, til upprifjunar, grafík er fengin frá Rosanna Yeung, úr bókinni Macromedia Flash MX 2004, Hands-On-Training. Æfingarnar eru symbols, motion tweening og motion guide. Einnig hægt að sækja sem symbols.pdf / motionTween.pdf / MotionGuide.pdf. Vinnuskjölin eru instances.fla, motionTween.fla, motionGuide.fla. Það er líka hægt að sækja einfaldlega grafíkina sem zip. Það er einnig hægt að skoða útkomuna hér sem .swf symbols / motionTween / MotionGuide.

1. maí 2007
Lesdagbók (.pdf) sem ég vann núna á vorönn 2007 í námskeiðinu Kenningar í kennslufræði; HÍ, félagsvísindadeild







30. mars 2007
Verkefni sem ég vann út frá bókinni Hugsun og menntun eftir Dewey. (.pdf) í námskeiðinu "Kenningar í kennslufræði" HÍ, Félagsvísindadeild.

12. mars 2007
Ég var með málstofu í dag á námskeiðinu "Kenningar í kennslufræði" HÍ, kynnti niðurstöður rannsóknar um viðhorf nemenda til tölvustudds náms sem ég gerði haustið 2006 í Menntaskólanum í Kópavogi, ásamt Ingibjörgu Haraldsdóttur og Gretu Kaldalóns. Hér er að finna uppýsingar um málstofuna (.pdf), lesefni fyrir þátttakendur málstofunnar (.pdf) ásamt glærunum sem voru notaðar við kynninguna (.ppt)

22. febrúar 2007
Kennsluáætlun fyrir KES1203K - Kennslufræði sjónlista - Lotu 1 (.pdf). Námskeið sem ég er að fara að kenna í Kennaranámi Listaháskóla Íslands.

20. febrúar 2007
Kennsluáætlun fyrir ONE1202-Opið námsefni á Neti (.pdf). Námskeið sem ég er að fara að kenna í Kennaranámi Listaháskóla Íslands.

11. janúar 2007
Tenglar á leiðbeiningar í vefsíðugerð sem ég hef gert

20. nóvember 2006
Glærur (.ppt) frá kynningu á niðurstöðum rannsóknar sem ég vann um viðhorf nemenda til tölvustudds náms í Menntaskólanum í Kópavogi, ásamt Ingibjörgu Haraldsdóttur og Grétu Kaldalóns.

15. nóvember 2006
Glærur frá fyrstu kynningu minni á rannsókn sem ég er byrjuð á að gera sem heitir "Opið, lifandi og gagnvirkt samfélag kennara á Netinu" Þessar glærur eru gerðar í Powerpoint og á öftustu glæru er video sem er tæplega 15 mb. stórt, dæmi úr einu viðtalinu sem ég hef tekið. Viðmælandinn minn þarna er Ásta Guðjónsdóttir.

31. október 2006
Glærukynning um "Notkun á bloggi í námi" sem ég gerði

25. október 2006
Hugarkort sem ég gerði upp úr grein Guðrúnar Helgadóttur í Netlu, tímariti um uppeldi og menntun, um námsmat í sjónlistakennslu.

19. október 2006
Exposición de pintura en el año 1994 en Sala Lazarillo en España. Projecto para mi clase en Español. (.ppt) (.html)

17. október 2006
Sniðmát sem ég hef gert.

12. október 2006
Viðfangsefni verkefnis sem ég er að vinna um kenningarlegar bakgrunn fyrir rannókn á samfélagi kennara. Hópverkefni í námskeiðinu Kenningar í félagsfræði og heimspeki menntunar. Tímaáætlun.

12. október 2006
Var að byrja námskeið í Kennslufræði sjónlista í dag í Kennaranámi LHÍ. Var rosalega gaman, ótrúlega skemmtilegar þessar fræðilegu pælingar. Ákvað að henda smá vef í loftið fyrir nemendur mína með tenglum á efni námskeiðsins.

10. september 2006
Nemendur mínir í námskeiðinu Verkfæri í listgreinakennslu í Kennaranámi LHÍ, unnu skjákynningu um verkfæri að eigin vali og notuðu hugarkort til að skipuleggja innihaldið.

19. ágúst 2006
Námsefni / ítarefni í VIL1202K Verkfæri í listgreinakennslu

3. ágúst 2006
Ég var að búa til vefsíðu með ljósmyndum frá Gullkistunni 2005, þe. listahátíð á Laugarvatni sem var 17. júní - 3. júlí 2005. Vefsíða sýningarinnar er http://www.gullkistan.is/

4. júlí 2006
Ljósmyndir, videobrot og hljóðupptökur frá Bryggjudegi, 10. júní sl.

5. júní 2006
Ljósmyndir af útskriftarárgangi 1986 - Verzlunarskóla Íslands
Skoða myndirnar á Netinu, þ.e. vafra á Netinu og njóta myndanna.
Sækja myndirnar í fullum gæðum zip þjappað, þ.e. hægri smella á þá möppu sem þú ætlar að sækja og velja "save link as" eða "save target as" (fer eftir því hvaða stýrikerfi þú ert með .... )

5. júní 2006
Sjónlistamenn á höfninni í Kópavogi
laugardaginn, 10. júní kl. 13-17
23 Kópavogslistamenn ásamt þremur gestum sýna verk sín á höfninni í Kópavogi, laugardaginn 10. júní kl. 13-17. Um er að ræða málverk, teikningar, skúlptúra, ljósmyndir og fleira. Verkin eru sýnd úti, í stórum ferðatjöldum og inni í þeim burstahúsum sem standa við höfnina.
Lesa meira

4. júní 2006
Bryggjudagur
Hátíð á höfninni í Kópavogi, 10. júní kl. 13-17
Eigendur og íbúar Bryggjuhúsa, Bakkabraut 5-7 í Kópavogi bjóða upp á sannkallaða fjölskylduskemmtun á einni fallegustu höfn landsins. Tónlist, matarlyst, sjónlistasýning, ljóðaupplestur, siglingar, skotkeppni í körfubolta, listasmiðja fyrir börnin, sýnikennsla í þæfingu ullar, tango og fleira. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira.

 

 

Kennsla haustið 2008
NÁM1103K - Um námsefnisgerð

Kennsla vorið 2008
KES1203K - Kennslufræði sjónlista II
FJL313 - Teiknimyndagerð
MHL213 - Grafísk hönnun
MHL203 - Stafræn ljósmyndun
Vinnustofa 3ja árs

Kennsla haustið 2007
NÁM1103K - Um námsefnisgerð
MHL203 - Stafræn ljósmyndun
SJL203 - Sjónlistir
FJL213 - Forritun
MHL213 - Grafísk hönnun
MDL1B3 - Vefur og ljósmyndun

Kennsla vorið 2007
ONE1203K - Opið námsefni á Neti
KES1203K - Kennslufræði sjónlista II

Skilasíða í fjarnámsáfanganum "Notkun upplýsingatækni í skólastarfi"

Tengill á Myndmennt.is

View sibba's profile on slideshare

 

 

Logo KULT. Tengill á kult.is. Menningar- og menntanet.

Hlaupadagbókin

Laugaskokk.is

Hlaup.is


www.flickr.com

This is a Flickr badge showing public photos from Sibba. Make your own badge here.